Hengill og Tvíhnúkar - heimahleðslustöðvar

Almennt um stöðina

Fyrir heimili og einstaklinga, hægt að fá bæði einfalda og tvöfalda. Falleg stöð sem hægt er að hafa inni í bílskúr eða úti. Hönnuð fyrir íslenskar aðstæður og veðurfar og þolir að standa úti allan ársins hring (IP65 raka- og rykþolin). Bæði hægt að hengja á vegg eða fá með staur*. Mjög einföld í notkun. Hægt að læsa aðgengi að stöðinni**. Hægt að fá stöðvarnar í flestum litum***. (sjá myndir fyrir neðan.)

Tækniupplýsingar

Stöðin tengist beint inn á töfluna í húsinu þínu og nýtir allt að 230VA 32 amper á einum fasa (eins og t.d. eldavélin á heimilinu) og gefur því allt að 7.7kw hleðslu. Það er hægt að fá hana með stuðningi við allt að 230V 32 ampera á þremur fösum sem gefur allt að 22KW hleðslukraft. Það er einfalt að tengja stöðina, en við mælum með því að fá löggildan rafvirkja til verksins. Við getum aðstoðað þig við val á verktaka eða verið þínum verktaka innan handar við uppsetningu svo allt virki eins og best verður á kosið. Allar stöðvarnar okkar koma með áföstum kapli/köplum og þú ræður hvort þú fáir Type 1 eða Type 2 kapal. Hægt að fá bæði einfalda og tvöfalda hleðslustöð þar sem tveir bílar geta hlaðið í einu.

Verð:

    Ath: Örtækni (www.ortaekni.is) sér um samsetningu og sölu. Vinsamlegast hafið sambandi við þá varðandi verð.

    Myndir af Hengli: